Verðskrá

vegna notkunar á vefsvæðinu

Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um verðskrá e-fasteigna. Fyrirspurnir er hægt að senda á e-fasteignir@e-fasteignir.is eða í gegnum fyrirspurnarvefform.

Reikningar eru sendir í heimabanka viðkomandi um 14 dögum frá notkun. Sjá nánari upplýsingar í notendaskilmálum.

Verðskráin sýnir verð með virðisaukaskatti.

Grunnaðgerðir

Skrá fasteign

Frítt

Enginn kostnaður felst í því að skrá fasteign

Við misnotkun áskilur e-fasteignir sér rétt til að innheimta gjald sem nemur raun-kostnaðinum og loka aðgangi notanda. Rökstuðningur fylgir þá með reikningi.

Fasteignasala / Fyrirtæki

Frítt

Enginn kostnaður felst í því að fá aðgang að kerfinu

Umsýsla með sölu fasteigna og aðgangur fasteignasala að kerfi e-fasteigna er frír. e-fasteignir er fyrsta fullbúna umsjónarkerfi fasteignaviðskipta á Íslandi án áskriftargjalds.

Kauptilboðsgerð

Frítt

e-fasteignir býður upp á frítt, rafrænt kauptilboðsferli

Aðilar sjá sjálfir um gerð kaup- og gagntilboða. Ef óskað er eftir aðstoð fagaðila, er tekið gjald samkvæmt liðnum hér að neðan"Frágangur - Kauptilboð".

Rafrænar undirritanir

Frítt

e-fasteignir bjóða upp á fríar rafrænar undirritanir innan eðlilegra marka

Óeðlilegur fjöldi fyrirspurna getur leitt til gjaldtöku skv. verðskrá Auðkennis ehf.

Þinglýst skjöl og gagnastraumar

Þinglýstur skjalalisti

1.490 kr.

Listi yfir öll skjöl sem hafa verið þinglýst á eignina. Sérhvert þinglýst skjal er hægt að sækja og er greitt fyrir samkvæmt verðskrá.

Þinglýst grunngögn

1.490 kr.

Allar þinglýstar grunnupplýsingar, svo sem notkunareiningar, verðmöt o.fl., verða sóttar og gerðar aðgengilegar.

Þinglýstir eigendur

1.790 kr.

Upplýsingar um þinglýsta eigendur verða sóttar og gerðar aðgengilegar.

Þinglýst skjal

1.490 kr.

Aðeins er greitt einu sinni fyrir sérhvert skjal

Skjalið er aðgengilegt endurgjaldslaust eftir að það hefur verið sótt áður.

Þinglýst lán

1.490 kr.

Aðeins er greitt einu sinni fyrir sérhvert lán

Lánið er aðgengilegt endurgjaldslaust eftir að það hefur verið sótt áður.

Fasteignavottorð

2.490 kr.

Aðeins er greitt einu sinni fyrir sérhvert vottorð

Fasteignavottorðið er aðgengilegt endurgjaldslaust eftir að það hefur verið sótt áður.

Fasteignayfirlit

2.490 kr.

Aðeins er greitt einu sinni fyrir sérhvert yfirlit

Fasteignayfirlit er aðgengilegt endurgjaldslaust eftir að það hefur verið sótt áður.

Veðbandayfirlit

2.990 kr.

Aðeins er greitt einu sinni fyrir sérhvert yfirlit

Veðbandayfirlitið er aðgengilegt endurgjaldslaust eftir að það hefur verið sótt áður.

Aðstoð frá lögmanni og löggiltum fasteignasala

1.1 Aðstoð við tilboðsgerð

179.900 kr.

Lögmaður og löggiltur fasteignasali veitir aðstoð við gerð og frágang kauptilboða

Skoða samning

e-fasteignir starfar með PRIMA fasteignasölu við skjalafrágang. Hér er veitt fagleg þjónusta frá lögmanni og löggiltum fasteignasala sem sér um leiðsögn og aðstoð við tilboðsgerð. Þjónustan hentar þeim sem þurfa stuðning við tilboðsgerðina, m.a. varðandi fjármögnun og greiðslutilhögun.

Þjónustan er ávallt aðgengileg notendum við gerð kauptilboðs og jafnframt er hægt að senda okkur fyrirspurn ef þörf er á frekari upplýsingum.

1.2 Aðstoð við skjalafrágang

189.900 kr.

Lögmaður og löggiltur fasteignasali veitir aðstoð við alla skjalagerð, svo sem söluyfirlit, kaupsamning, veðleyfi og afsal

Skoða samning

e-fasteignir starfar með PRIMA fasteignasölu við skjalafrágang. Hér er veitt fagleg þjónusta frá lögmanni og löggiltum fasteignasala sem sér um allan skjalafrágang. Þjónustan hentar þeim sem þurfa aðstoð við skjalagerð, svo sem söluyfirlit, kaupsamning, veðleyfi og afsal.

Þjónustan er ávallt aðgengileg notendum við gerð kaupsamnings og/eða afsals og jafnframt er hægt að senda okkur fyrirspurn ef þörf er á frekari upplýsingum.

Ljósmyndaþjónusta

Ljósmyndun - Íbúðir

21.750 kr.

Myndir (að lágmarki 18 stk.) eru teknar bæði að innan og utan. Myndirnar verða gerðar aðgengilegar undir skráningu fasteignar um leið og þær eru tilbúnar.

Finna fasteign og panta ljósmyndun

Ljósmyndun - Einbýlishús

24.000 kr.

Myndir (að lágmarki 28 stk.) eru teknar bæði að innan og utan. Myndirnar verða gerðar aðgengilegar undir skráningu fasteignar um leið og þær eru tilbúnar.

Finna fasteign og panta ljósmyndun

3D myndataka

29.750 kr.

Verð miðast við eignir upp að 200 m². Greitt er 4.550 kr./50 m² fyrir fermetra yfir 200 m².

Hlekkur með 3D myndatöku verður gerður aðgengilegur sem hægt er að deila t.d. inn af auglýsingu fasteignar.

Finna fasteign og panta ljósmyndun

Myndbandsupptaka innandyra

27.550 kr.

Hlekkur með myndbandsupptöku verður gerður aðgengilegur sem hægt er að deila t.d. inn af auglýsingu fasteignar.

Finna fasteign og panta ljósmyndun

Myndbandsupptaka utandyra

12.000 kr.

Hlekkur með myndbandsupptöku verður gerður aðgengilegur sem hægt er að deila t.d. inn af auglýsingu fasteignar.

Finna fasteign og panta ljósmyndun

Drónamyndir

10.050 kr.

Teknar eru myndir utandyra og af umhverfi. Myndirnar verða gerðar aðgengilegar undir skráningu fasteignar um leið og þær eru tilbúnar.

Finna fasteign og panta ljósmyndun

Pakkatilboð - Klassískur

47.500 kr.

Ljósmyndir, bæði inni og úti ásamt 3D myndatöku (eignir upp að 200 m²).

Finna fasteign og panta ljósmyndun

Pakkatilboð - Lúxus

62.000 kr.

Ljósmyndir, bæði inni og úti, 3D myndataka (eignir upp að 200 m²) ásamt drónamyndum af húsi og umhverfi.

Finna fasteign og panta ljósmyndun

Ljósmyndun utan höfuðborgarsvæðis

Fyrir Selfoss og Akranes er miðað við 75 kr./km ásamt 4.000 kr./klst. fyrir ferðatímann.

Önnur svæði

Hægt er að bregðast við ljósmyndun á öðrum svæðum og skoðast slík þjónusta skv. samkomulagi.

Gjaldskyldar aðgerðir og staðfesting

Staðfesting áður en gjaldskyld aðgerð er framkvæmd

Áður en gjaldskyld aðgerð er framkvæmd fær notandi upplýsingar um að aðgerðin sé gjaldskyld og þarf að staðfesta sérstaklega að hann vilji halda áfram. Gjaldskyld aðgerð er því ekki framkvæmd fyrr en notandi hefur veitt samþykki sitt.

Við staðfestingu er notanda sýnt verð aðgerðar samkvæmt þeirri verðskrá sem er í gildi hverju sinni. Reikningur eða krafa er síðan send í heimabanka í samræmi við verð og skilmála sem giltu þegar aðgerðin var framkvæmd.

Þegar skjal eða gögn hafa áður verið sótt

Þegar skjal eða gögn hafa áður verið sótt og gjaldskyld aðgerð staðfest er notanda það sýnt áður en gögnin eru sótt aftur. Þar kemur fram að gjaldskyld aðgerð hafi áður verið staðfest og, eftir því sem við á, hvenær staðfestingin fór fram.

Gögn sem þegar hefur verið greitt fyrir eru aðgengileg aftur án endurgjalds og þarf notandi því ekki að staðfesta nýja gjaldskylda aðgerð.

Athugið

Á mínum síðum eru upplýsingar um fyrri staðfestingu eingöngu birtar til upplýsinga, t.d. þegar tiltekið skjal hefur verið sótt áður. Verð sem birtist á vefnum miðast við gildandi verðskrá hverju sinni, en krafa eða reikningur vegna fyrri aðgerðar miðaðist við þá verðskrá sem var í gildi þegar aðgerðin var framkvæmd. Verðskrá og skilmálar e-fasteigna geta tekið breytingum.

operator

SELJUM SJÁLF

Skráðu fasteignina þína til sölu

e-fasteignir logo - Snjallari fasteignaviðskipti